Kennt er á hefðbundinn rennibekk, fræsvél og borvél. Kennslan er einstaklingsmiðuð. Öryggismál eru veigamikill þáttur í náminu. Samhliða verklegri kennslu er bókleg kennsla.
Námið byggir á verkefnalausnum nemenda, bók- og verklegum.
RENN1GR05 (REN1A05)
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
öryggismálum og umhirðu spóntökuvéla.
áhrifum skurðverkfæra á afköst og áferð vinnslustykkja.
muninum á fín- og grófrennsli.
nákvæmni spóntökuvéla.
Notkunarmöguleikum og beitingu kastmæla.
möguleikum og mun á ýmsum gerðum plan- og hjólfræsa.
sniði og skurðraufum við samsetningar á renndum hlutum.
nýtingu klóplans.
deilivél.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
renna á milli odda.
skrúfuskera rær.
renna strýtur og fella saman.
renna utan- og innanmál með 0,05 mm málvikum.
nota deilivél við kantfræsingu.
fræsa og fella saman kíl og kílspor.
stilla vinnslustykki upp í klóplan með 0,1 mm málvikum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gæta ávallt fyllsta öryggis þegar unnið er við spóntökuvélar.
gera eigin verkáætlanir þar sem málvik geta verið allt að 0,05 mm og unnið eftir þeim að lausn verkefna.
reikna út deilingar og strýtur.
reikna út einfaldan vinnslutíma og finna út færslur samkvæmt töflum.
gera stutta greinargerð um hvert verkefni (má vinna í samvinnu við annan nema) þar sem fram koma efnistök, véla- og verkfæraval, framvinda verks og vinnslutími.
Hlutlægt mat á verkefnum og greinargerðum nemenda og ástundun.