Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429203924.73

    Rafsuða 1
    RAFS1SU05
    1
    rafsuða
    Kunna skil á helstu suðuaðferðir
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Nemendur kunna skil á helstu suðuaðferðum, efni og suðuvírum. Þeir geta metið aðstæður til rafsuðu og er ljóst hvernig gæta ber fyllsta öryggis. Nemendur eru færir um að sjóða plötur í öllum suðustöðum (kverksuður) með pinnasuðu, samkvæmt staðlinum ÍST EN 287-1 ( flokkur C). Færni miðast við kverksuðu og grunnatriði suðuferlis. Nemendur geta skráð grunnatriði suðuferlislýsingar. Þeir skulu ná suðugæðum í flokki C samkvæmt ÍST EN 287-1.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu suðuaðferðum, afköstum þeirra, hagkvæmni og takmörkunum við mismunandi efnisþykkt og aðstæður (úti eða inni).
    • eiginleikum mismunandi suða, s.s. styrk þeirra og hættu á suðugöllum.
    • muninum á suðu með rið- og jafnstraum.
    • gildi ljósbogaspennu og tómgangsspennu.
    • staðli um mat á suðum og suðugöllum.
    • staðli um suðustöður og um hæfnisvottun suðumanna.
    • staðli um merkingu rafsuðuvíra.
    • staðli um merkingu stáls, t.d. ÍST EN 22 553.
    • bruna og sprengihættu, reykflokkun rafsuðuvíra og mikilvægi góðrar loftræstingar.
    • mismunandi uppbyggingu stáls m.t.t suðuhæfni.
    • framleiðslu hrájárns og stáls.
    • óþéttu, þéttu og hálfþéttu stáli.
    • grunnþáttum málmfræði stáls.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • efna niður samkvæmt vinnulýsingu.
    • stilla upp og sjóða samkvæmt ferillýsingu.
    • sjóða kverksuður í PB, PF og PG suðustöðum.
    • stilla suðuvél og velja víra samkvæmt suðuferlum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • fylgja eftir munnlegum og skriflegum fyrirmælum.
    • sjónmeta suður samkvæmt staðli ÍST EN 287-1.
    • mæla mál suðu.
    • útskýra staðlaðar merkingar pinnasuðuvíra.
    • meta slysa- og brunahættu vegna vinnu sinnar.
    • finna í bókum, töflum og á netinu upplýsingar um mismunandi efniseiginleika stáls m.t.t suðuhæfni.
    • meta hvort ástæða sé til að beita hitameðferð með t.d. kolefnisjöfnu.
    Námsmat byggir á verkefnavinnu og prófum. Leiðsagnarmati er beitt eftir kostum.