Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429260881.01

    Hlífðargassuða
    HLGS2TI05
    4
    Hlífðargassuða
    TIG suðutækni
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Nemendur læra að undirbúa og sjóða TIG-suðu á kol- og kolmangan stáli og ryðfríu stáli svo þeir geti soðið efnisþykktir 1 – 3 mm í plötu með gegnumsuðu frá annarri hlið í suðustöðum PA, PB, PC, og PF samkvæmt gæðaflokki C (ÍST EN 25817). Þeir læra að sjóða rör í láréttri og lóðréttri stöðu og þekkja notkun bakgasbúnaðar. Ennfremur verða þeir færir um að skipuleggja og undirbúa suðuverkefni m.t.t. krafna um gæði, öryggi og umhverfi. Nemendur geta soðið eftir suðuferlislýsingum.
    LOGS1UM05 (LSU1A05)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • gastegundum og gasblöndum sem notaðar eru við suðu á ryðfríu stáli.
    • bakgasi og bakgasbúnaði.
    • hlutverki hlífðargassins og réttum stillingum þess.
    • mismunandi gerðum rafskauta.
    • öllum hluta suðubyssunnar og leiðara.
    • virkni suðutækja.
    • ljósboganum og mismunandi straumferlum.
    • háspennu og hátíðnitækni í TIG-suðuvélum.
    • aðferðum við hreinsun á yfirborði suðu.
    • öryggismálum og hættu vegna rafstraums.
    • öryggisreglum varðandi hreinsiefni.
    • helstu hættum og varúðarráðstöfunum vegna geislunar, hita, reyks, ósonmyndunar og eldfimra efna.
    • hlífðarfatnaði og hlífum.
    • gerð suðuraufa fyrir mismunandi aðstæður.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • stjóða stálplötur 1-3 mm PA, PB, PC, PF, PG.
    • sjóða ryðfríar stálplötur 1-3 mm PA, PB, PC, PF, PG.
    • stjóða álplötur 2-3 mm PA, PB, PC, PF, PG.
    • sjóða rör PA og PC.
    • undirbúa efni undir suðu.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • stillt suðutækin þannig að henti efni og suðurauf sem metið er með verkefnum og prófum.
    • valið vír á eigin spýtur m.t.t. efnis og suðuraufar sem metið er með verkefnum og prófum.
    • stillt gasflæði, valið gashulsu og skaut m.t.t. efnis og straumstyrks sem metið er með verkefnum og prófum.
    • soðið í suðustöðum PA, PB, PC, PF, PG í plötu sem metið er með verkefnum og prófum.
    • soðið rör í láréttri og lóðréttri stöðu sem metið er með verkefnum og prófum.
    • soðið eftir suðuferlislýsingum en það er metið með verkefnum og prófum.
    • mælt og skráð viðeigandi upplýsingar varðandi suðuverkefnið, straumstyrk, raufarstærð og aðrar upplýsingar fyrir suðuferlislýsingar sem metið er með skriflegri skýrslugerð.
    • sinnt viðhaldi fylgibúnaðar suðuvéla sem metið er með samtali við nemandann á vinnusvæði.
    • uppfyllt reglur um öryggismál sem metið er með samtali við nemandann á vinnusvæði.
    Verkefnavinna, hlutapróf og lokapróf. Lögð er áhersla á að námsmat gagnist nemanda við nám sitt og kennara við skipulagningu og útfærslu kennslunnar (leiðsagnarmat).