Áfanginn fjallar um landrek ákveðinna svæða og myndun úthafa og fellingafjalla. Rýnt er í kenningar um uppruna jarðar og aldursákvarðanir. Fjallað er um þróun lífsins og kenningar um útdauða. Farið er í jarðsögutöfluna og hvað einkennir mismunandi tímabil jarðsögunnar.
JARÐ2JÍ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þróun jarðar frá örófi alda.
jarðsögutöflunni og helstu einkennum hvers tímabils.
tilurð ísalda og hlýskeiða.
grundvallaratriðum í þróun lífsins.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina mismunandi uppruna jarðlaga út frá mismunandi jarðsögutímabilum.
átta sig á loftslagsbreytingum og ummerkjum ísalda og hlýskeiða í nútímalandslagi.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vera viðræðuhæfur þegar jarðfræðileg málefni ber á góma.
lesa fræðigreinar um jarðfræðileg málefni með gagnrýnni hugsun.