Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429267382.93

    Veður-og haffræði
    JARÐ2VH05
    29
    jarðfræði
    veður og haffræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áfanginn fjallar um grundvallarþætti í samsetningu og eðlisfræði lofthjúpsins. Áhrif sólargeislunar á lofthjúpinn og misjafna hitadreifingu jarðar. Veðrakerfin og þrýstingsbreytingar í lofthjúpi jarðar. Tengsl veðurfars og gróðurbelta og áhrif verðurfarsbreytinga á lífríki jarðar. Sérstaklega verður fjallað um veðurfar og veðráttu á Íslandi. Þá verður í áfanganum tekin fyrir fræði hafsins þar sem hafið er skoðað m.t.t. seltu, strauma, hafsbotns, sjávarhita, hafíss og helstu lífsskilyrða sjávar.
    JARÐ2JÍ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • lofthjúpi jarðar, efnasamsetningu og lagskiptingu hans.
    • þeim kröftum sem stýra veðrakerfunum.
    • mismunandi skýjagerðum.
    • tengslum verðurfars og gróðurbelta og tengslum veðurfars og landslags.
    • hafinu og helstu einkennum þess.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • gera einfalda verðurspá út frá þrýstikorti.
    • lesa veðurkort.
    • skoða hafið út frá mikilvægi þess á jörðinni og þeim áhrifum sem það hefur við strendur landa.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • fylgjast með og skilja verðurspá.
    • spá fyrir um veðrabreytingar út frá fyrirliggjandi gögnum.
    • meta þá krafta sem eru að verki í lofthjúpi jarðar og valda veðrabreytingum.
    • meta þau áhrif sem hafið hefur á daglegt líf okkar t.d. hvað varðar veðurfar, sjávarföll og strauma.
    Próf og verkefni.