Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429270877.58

    Lífeðlisfræði
    LÍFF2LE05
    40
    líffræði
    lífeðlisfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Fjallað verður um frumulíffræði, vefjagerðir og nokkur líffærakerfi og líffærakerfi.
    LÍFF1GÁ05 eða 7 eða hærra á grunnskólaprófi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • frumum og starfsemi frumna.
    • undirstöðuatriðum í lífeðlisfræði.
    • byggingu og starfsemi nokkurra líffærakerfa (húðin, hjarta-og öndunarkerfa).
    • samhæfingu líffærakerfa sem stuðla að innra jafnvægi líkamans.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina ólíkar frumugerðir.
    • lýsa starfsemi líffærakerfanna í máli og myndum.
    • átta sig á hvað telst eðlileg líkamsstarfsemi.
    • skilja og tengja störf ólíkra líffærakerfa.
    • kryfja líffæri.
    • skrifa skýrslu.
    • vinna úr heimildum á neti.
    • koma þekkingu sinni á framfæri.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera einfaldar mælingar á líkamsstarfsemi s.s. mæla blóðþrýsting, öndunarmælingar og tengja niðurstöður við fræðin og draga ályktanir af þeim.
    • kryfja innri líffæri og skrifa skýrslu um það .
    • útskýra þekkingu sína í máli og myndum.
    • leita að áreiðanlegum heimildum á netinu og nýta þær til að leysa verkefni.
    Lokapróf og vinnueinkunn.