Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429291028.4

    Hegðun og atferlismótun
    SÁLF2AM05
    42
    sálfræði
    Atferlismótun
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er fjallað um atferlismótun sem aðferð við markvissa hegðunarstjórnun, þar sem nemendur kynnast grunnatriðum hagnýtrar atferlisgreiningar og beitingu hennar. Fjallað er um hvernig hægt er að nota markvisst jákvæða athygli til að styrkja eftirsóknarverða hegðun og aðferðir til að draga úr óæskilegri hegðun. Fjallað er um hegðunarstjórnunarmódel og grunnhugtök viðbragðsskilyrðingar kynnt. Nemendur fá þjálfun í að greina þætti sem stjórna og viðhalda hegðun. Fjallað er um hvað ber að hafa í huga þegar hegðun er skilgreind og mæld, fyrir og eftir íhlutun. Komið er inn á siðferðilegar spurningar tengdar hagnýtri atferlisgreiningu og atferlisþjálfun. Fjallað er um árangursríkar leiðir til að gera samninga um hegðun við börn og unglinga. Hluti verkefna felst í að nemendur prófa að beita aðferðum atferlismótunar heima og á vettvangi undir leiðsögn kennara.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnhugtökum virkrar skilyrðingar
    • atferlisgreiningu
    • ólíkum tegundum umbunarkerfa
    • gildi og beitingu jákvæðrar styrkingar og hvað ber að hafa í huga við val á styrkjum og beitingu þeirra
    • ólíkum tegundum aðferða til að draga úr hegðun, eins og áminningum, tímahléi, hunsun og slokknun
    • leiðum til að gera samninga um hegðun við börn og unglinga
    • siðferðislegum álitamálum sem koma upp við beitingu atferlismótunar
    • ólíkum tegundum atferlismótandi kerfa
    • gildi jákvæðra viðhorfa og virðingar gagnvart einstaklingum sem unnið er með
    • mikilvægi samvinnu heimilis og skóla við atferlisþjálfun
    • grunnhugtökum viðbragðsskilyrðingar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina aðdraganda, hegðun og afleiðingar hegðunar út frá tilbúnum og raunverulegum dæmum
    • beita aðferðum eins og markvissri jákvæðri athygli til að auka eftirsóknarverða hegðun í samskiptum við börn og unglinga
    • beita aðferðum til að draga úr óæskilegri hegðun
    • skrá, mæla og skilgreina hegðun fyrir og eftir íhlutun
    • greina hvaða þættir viðhalda óæskilegri hegðun
    • fjalla um hugtök, gildi og hagnýtingu atferlismótunar í daglegu lífi
    • ræða álitamál í tengslum við refsingar í atferlismótun
    • smíða og beita umbunarkerfi
    • greina þau áreiti og viðbrögð sem eiga sér stað í viðbragðsskilyrðingu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • draga úr óæskilegri hegðun og auka eftirsóknarverða hegðun
    • gera sér grein fyrir gildi jákvæðra viðhorfa og virðingar gagnvart einstaklingum
    • setja skýr mörk og fylgja þeim eftir
    • sjá kosti og ókosti mismunandi aðferða í atferlismótun og geta þar af leiðandi valið viðeigandi aðferðir eftir aðstæðum
    • rökstyðja og draga ályktanir um siðferðileg álitamál tengd atferlismótun
    • nýta sér atferlismótandi atferðir á starfsvettvangi og heima
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá