Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429355276.93

    Íþróttir
    ÍÞRÓ1HA01
    91
    íþróttir
    almenn líkams og heilsurækt, hreyfing, likamsræktarsalur
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    Áfanginn byggist upp á alhliða hreyfingu og heilsurækt í líkamsræktarstöð og nánasta umhverfi. Nemendur stunda hreyfingu við hæfi þar sem fjölbreytni er í fyrirrúmi. Nemendur vinna mikið sjálfstætt og útbúa eigin þjálfunaráætlun.
    ÍÞRÓ1HL02
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Mikilvægi almennrar heilsuræktar
    • Markmiðssetningu og uppbyggingu þjálfunaráætlunar.
    • Mikilvægi réttrar líkamsbeitingar.
    • Mismunandi þjálfunaraðferðum til eflingar líkama og heilsu.
    • Mikilvægi þess að nýta nágrenni sitt til útivistar.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Að auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta.
    • Stunda þjálfun og hreyfingu sem hefur áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til líkams- og heilsuræktar.
    • Sjá tækifæri til hreyfingar undir beru lofti.
    • Nýta sér undirstöðuatriði líkamsbeitingar í sinni þjálfun.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Hann fái áhuga fyrir því að hreyfa sig ævina á enda þar sem upplifun hans er metin með því að halda hreyfingardagbók.
    • Velja líkamsrækt við hæfi.
    • Leysa af hendi verkefni sem snúa að skipulagi eigin þjálfunar sem metið er með því að nemandi útbýr æfingaáætlun.
    • Takast á við áskoranir daglegs lífs sem metið er með sjálfsprófi.
    • Styrkja jákvæða sjálfsmynd og hugarfar með þátttöku í almennri heilsurækt og útiveru sem metið er með virkni, áhuga og mætingu í tíma.
    • Glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams- og heilsuræktar.
    • Nýta sér möguleika í að flétta reglubundna hreyfingu í daglegt líf og starf sem metið er með spurningarlistum.
    • Nýta sér möguleika til heilsuræktar í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni sem metið er með markmiðssetningu, dagbókarskrifum og sjálfsprófi.
    Áfanginn er verklegur. Nemendur þurfa að vinna sjálfstætt en geta fengið mikla leiðsögn óski þeir eftir því. Lögð er áhersla á að nemendur mæti jafnt og þétt yfir alla önnina og byggist námsmat á því. Áfanginn er próflaus.