Áfanginn byggir á að nemendur öðlist meiri þekkingu og færni á hinum almenna vinnumarkaði. Sérstök áhersla er á að kynna gerð ferilskrár og hvað skiptir máli við umsókn um vinnu og sýna þannig fram á mikilvægi þess að skrá skipulega upplýsingar um starf sitt á vinnumarkaði. Nemendur sem eru í starfi, meðfram námi, hafa tök á að sækja þennan áfanga. Áfanginn byggir vinnuframlagi nemandans og verkefnum sem tengjast vinnumarkaði sem og reglulegum dagbókarskrifum.
VINS1RV10
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
umhverfi vinnumarkaðarins
þeim kröfum sem gerðar eru á vinnumarkaði
samskiptum við yfirmenn sína og hlutverkum þeirra
aukinni hæfni í starfi sínu
gerð ferilskrár
starfsmannastefnu síns vinnustaðar og starfsmannahandbók
grunnreglum um hvað ber að hafa í huga þegar sótt er um starf
góðum starfsmanni
starfslýsingu starfsmanna/mannauðsstjóra
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina þarfir vinnumarkaðsins
eiga samskipti við yfirmenn sína
gera ferilskrá og kynningarbréf þegar sótt er um starf
þekkja mikilvægi góðrar starfsmannastefnu og vinnuanda
bera sig rétt að þegar sótt er um starf
þekkja hvað einkennir góðan starfsmann
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Dagbókarskil á tveggja vikna fresti alla önnina auk skriflegra verkefna sem skal skila tvisvar sinnum. Ekki er mæting í kennslustundir en viðtöl á milli nemanda og kennara eiga sér stað þrisvar sinnum yfir önnina og fer eitt þeirra fram á vinnustað nemenda. Einnig þarf að skila starfsvottorði, undirskrift vinnuveitanda og klára VR-skóla lífsins á heimasíðu hans.