Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429622914.67

    Lífræn efnafræði
    EFNA3LÍ05
    27
    efnafræði
    lífræn- og lífefnafræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í þessum áfanga er nemandinn undirbúinn fyrir framhaldsnám í lífrænni efnafræði, lífefnafræði og nám á heilbrigðisvísindasviði. Áhersla er lögð á þekkingu á einkennum lífrænna efna og tengihæfni kolefnisfrumeindarinnar. Fjallað verður um helstu flokka lífrænna efna og veitt innsýn í nafnakerfi þeirra ásamt megingerðum lífrænna efnahvarfa.
    EFNA2AE05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • byggingu helstu frumeinda (atóma) lífrænna efna og svigrúmum þeirra
    • með hvaða hætti snúningur um tengi kolefnis er mögulegur
    • helstu efnatengjum og hvaða þættir ráða mestu um lögun lífrænna sameinda
    • flokkum ísómera og byggingaformúlum lífrænna efna
    • mólekúltáknum
    • aðalþáttum IUPAC nafnakerfisins
    • eðlis- og efnaeiginleikum flokka lífrænna efna og einkennishópa þeirra
    • myndun og niðurbrot algengustu efna úr hverjum flokki
    • helstu gerðum efnahvarfa lífrænna efna
    • eiginleikum sýra og basa
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nefna (IUPAC) og teikna byggingarformúlur helstu ísómera lífrænna efna
    • lýsa svigrúmum helstu atóma lífrænna efna
    • nota mólekúltákn við lýsingu á efnahvörfum
    • greina lífrænar sýrur og afleiður þeirra
    • stilla efnajöfnur oxunar/afoxunarhvarfa og sýrubasa hvörf (rammar og daufar sýrur og basar)
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • auka skilning sinn á efnafræðilegum viðfangsefnum og samtengingu þeirra við aðrar fræðigreinar
    • umgangast lífræn efni, sýrur og basa af þekkingu og öryggi
    • nýta sér eiginleika mismunandi flokka lífrænna efna á markvissan og skapandi hátt
    • að þekkja dæmi um notkun mismunandi flokka lífrænna efna í landbúnaði, iðnaði, á heilbrigðissviði og á heimilinu
    • takast á við frekara nám á sviði lífrænnar efnafræði, lífefnafræði og heilbrigðisvísinda