Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429625557.49

    Hlutbundin hugbúnaðargerð
    TÖLF3HH05
    2
    Tölvunarfræði
    Hlutbundin hugbúnaðargerð
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum fá nemendur æfingu í hlutbundinni forritun og einfaldri leikjaforritun í Python og Pygame. Farið er yfir mismunandi ferli við hugbúnaðargerð. Unnið verður jöfnum höndum með textabundin og myndræn notendaskil. Helstu efnisatriði: klasar og hlutir, erfðir, hugrænn klasi, viðmót, fylki, röðun, aðferðir, eiginleikar, smiðir private – public, nafnasvæði, klasasöfn, frávik, skrár, sjálfkvaðning, myndir, gagnaskipan (staflar, listar, tré...), gagnasnið o.fl.
    TÖLF2TF05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ferlum við gerð hlutbundinna forrita
    • forritun í klösum
    • forritun með grafík og hljóðum
    • leit í gögnum
    • flóknari gagnaskipan (fylki, listar o.fl.) og snið gagna
    • meðhöndlun frávika
    • sjálfkvaðningu í forritum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • sýna sjálfstæð vinnubrögð við forritun
    • velja viðeigandi gagnaskipan
    • vinna með uppskiptingu forrits í aðalforrit og aðferðir
    • gera sjálfstæðra klasa, tilviksaðferða og klasaaðferða
    • vinna með þýðingu og keyrslu forrita í myndrænum notendaskilum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrifa, þýða og villuleita hlutbundin forrit
    • leysa forritunarverkefni með því að beita klasaforritun, aðferðum og atburðadrifinni forritun
    • styrkja eigin hæfni í forritun með því að nýta upplýsingar í kennslubókum og á Netinu
    • geta haldið áfram forritunarnámi sínu og tekist á við þyngri verkefni, hvort heldur á framhalds- eða háskólastigi
    Námsmat skal vera fjölbreytt og byggja á verkefnavinnu með áherslu á leiðsagnarmat.