Parísaráfangi. Nemendur kynna sér sögu Frakklands með sérstakri áherslu á Párís. Þeir kynna sér einnig sögu borgarinnar og læra að þekkja helstu staði og kennileiti, mállýsku og einkenni borgarbúa. Í lok áfangans fara nemendur til Parísar, skoða borgina og sjá þá staði sem þeir hafa verið að læra um á önninni. Unnið er með alla færniþættina fjóra, þ.e. tal, hlustun, ritun og lesskilning
FRAN1DD05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
menningu Frakklands og Parísar í hinum víðasta skilningi
landafræði, staðháttum, hvar helstu kennileiti og áhugaverða staði er að finna
því sem efst er á baugi varðandi samfélag og dægurmál
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja texta sem fjalla um sögu Frakklands/Parísar
skilja talað mál
segja frá/halda kynningu um menningartengt efni Parísar
beita góðri málnotkun í hinum ýmsu verkefnum
skrifa texta um tiltekin málefni sem tengjast París
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
rata um áfangastaðina og þekkja helstu staði, kennileiti og byggingar
tjá sig á hótelum, söfnum og á veitingastöðum
hafa samskipti við heimafólk, til dæmis taka viðtöl, og bregðast við óvæntum uppákomum
vinna verkefni í París, þar sem reynir á tal, hlustun, samstarf, sjálfstæð vinnubrögð og ritun
Áfanginn er próflaus, en verkefni eru unnin jafnt og þétt yfir önnina. Þau er bæði munnleg og skrifleg, einstaklingsverkefni og hópvinna. Síðasta verkefnið er unnið í París