Í áfanganum lærir nemandinn grunnatriði stafrænnar ljósmyndunar og dýpkar skilning sinn á myndvinnslu og mikilvægi skipulagðrar hugsunar við grafíska framsetningu. Auk þessa fá nemendur kynningu á verkfærum til einfaldrar hreyfimyndagerðar.
MARG1MV03 eða sambærilegur áfangi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnatriðum stafrænnar ljósmyndunar og tækjum henni tengdri
grunnatriðum hreyfimyndagerðar og forritum henni tengdri
hvernig hægt er að nýta grafíska framsetningu til kynningar á eigin myndum
hvernig hægt er að gera einfaldar hreyfimyndir
hvernig á að vista rafræn gögn
mismunandi skáarendingum (.tiff, .jpeg, .avi o.fl.)
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með stafræna ljósmyndun og eigin ljósmyndir í myndvinnsluforritum
gera einfaldar hreyfimyndir út frá eigin hugmyndum
meta möguleika eigin ljósmynda til frekari úrvinnslu
miðla eigin sköpun í ljósmyndum og hreyfimyndum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna sjálfstætt með stafrænar ljósmyndir á skapandi hátt
rökstyðja val sitt á viðfangsefnum og verkfærum sem hann notar
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.