Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandinn læri um hlutverk þjálfara í íþróttastarfi, sérstaklega við þjálfun barna á aldrinum þriggja til tólf ára. Lögð er áhersla á skipulag þjálfunar, áætlanagerð og markmiðssetningu. Nemandinn fær undirstöðuþekkingu í kennslu- og aðferðafræði íþrótta og þjálfun í að bregðast við íþróttameiðslum. Farið verður yfir upphitun, bæði almenna og sérhæfða. Fjallað er um mataræði íþróttamanna og áhrif fíkniefna á afkastagetu og árangur. Einnig er lögð áhersla á að nemandinn læri um uppbyggingu frjálsra félagasamtaka, sérstaklega íþróttafélaga. Nemandinn fær innsýn í stjórnunarstörf sem tengjast íþróttaviðburðum og félagasamtökum, kynnist stefnumótun í félagsstarfi, uppbyggingu félaga og skipulagi og helstu skipuritum sem starfað er eftir. Í áfanganum er einnig komið inn á samskipti heimila og frjálsra félaga, jafnrétti og vímuvarnarstefnu íþróttafélaga.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hlutverki þjálfara í íþróttum
helstu þroskaþáttum barna
helstu þjálfunaraðferðum
tilgangi upphitunar
áhrifum mataræðis á afkastagetu íþróttamanna
áhrifum ólöglegra lyfja á afkastagetu íþróttamanna
uppbyggingu og starfsemi frjálsra félagasamtaka og íþróttafélaga, sér- og fjölgreinafélaga, og hlutverki stjórnenda
hlutverki sínu sem fyrirmynd
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina á milli þjálfunar barna og fullorðinna
nota upplýsingatækni við skipulag þjálfunar
stjórna fundum og skrifa fundargerðir
skipuleggja þjálfun og markmið hennar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
stjórna æfingatíma barna með þroska þeirra í huga
stjórna upphitun fyrir alla aldurshópa
útbúa tímaseðla
skipuleggja keppnisferðalag með börnum
skipulegggja þjálfun til skemmri og lengri tíma
skipuleggja mataræði með það að markmiði að ná árangri í íþróttum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.