Í þessum byrjunaráfanga er fjallað um rekstur fyrirtækja og umhverfi þeirra. Fjallað er um grunnatriði hagfræðinnar og skilgreiningar á mismunandi skipulagsheildum. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist yfirsýn yfir fyrirtæki sem skipulagsheild og hvernig það þrífst í samkeppni við önnur fyrirtæki.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grundvallarhugtökum hagfræðinnar skorti, vali og fórnarkostnaði
hugtökunum framboð og eftirspurn
helstu framleiðsluþáttum
helstu kostnaðarhugtökum
muninum á beinum og óbeinum kostnaði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja hugtökin tekjur, kostnaður og afkoma
nota aðferðir við útreikning framlegðar og rekstrarjafnvægis
þekkja mismunandi rekstrarform fyrirtækja
reikna út eigið verð afurðar (sjálfskostnað)
gera fjárhagsáætlun og skilja hagnýtingu fyrir stjórnendur fyrirtækja
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja hvernig verðmæti myndast innan fyrirtækja og hvernig þeim er ráðstafað ...sem er metið með... verkefnum og prófum
Nemendur þurfa að vinna mörg verkefni í áfanganum þar sem kennslan fer aðallega fram með verkefnavinnu nemenda. Námsmatið er mat á þessari vinnu ásamt tímaprófum og lokaprófi.