Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1430931403.05

    Næringarfræði
    NÆRI2NF05
    7
    næringarfræði
    næringarfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum eru tekin fyrir þau næringarefni sem líkaminn þarfnast ásamt tengslum þeirra við sjúkdóma og íþróttaþjálfun.
    LÍFF1GÁ05 eða LÍFF2LE05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • samspili næringar og heilsu.
    • helstu efnum sem líkaminn er byggður úr.
    • orkugjöfum og orkuþörf líkamans.
    • hlutverki helstu steinefna og vítamína í líkamanum og skortseinkennum þeirra.
    • ýmsum megrunaraðferðum og fæðubótarefnum, kostum þeirra og göllum.
    • næringarþörfum íþróttafólks.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • reikna út orkugildi matvæla út frá orkuefnum í þeim.
    • lesa á umbúðir og meta næringargildi matvæla.
    • nota næringarefnatöflur til að áætla næringarinnihald matvæla.
    • kanna eigin neysluvenjur og og reikna út næringarþörf sína.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka rökstudda afstöðu til næringarmála í daglegri umræðu.
    • gera sér grein fyrir eigin næringarþörf og geta sett saman heilsusamlegar máltíðir.
    • tengja næringarfræðina við daglegt líf og sjá notagildi hennar.
    Verkefnavinna og lokapróf