Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1430999351.28

    Spænska 2- a2 - tungumál og menning
    SPÆN1TM05
    57
    spænska
    a2, tungumál og menning
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Byggt er markvisst á þeirri kunnáttu sem nemendur hafa nú þegar tileinkað sér ritun í samræmi við þrep A2 í evrópska tungumálarammanum. Meginmarkmið er að auka og bæta orðaforða og tjáningarhæfni í spænsku. Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur séu færir um að skilja venjulegt talað og ritað mál almenns eðlis. Nemendur kynnist frekar menningu spænskumælandi landa. Áhersla er lögð á aukinn orðaforða og lesskilning. Til þess að þjálfa þessi atriði er meðal annars tekið mið af eftirfarandi: matvæli og heilsa, matur og drykkur. Verslun, smáauglýsingar og hús.
    SPÆN1MT05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná leikni- og hæfnimarkmiðum áfangans
    • grundvallarþáttum spænsks málkerfis: framburði, áherslu og einfaldri setningaskipan
    • spænskumælandi löndum, og fengið innsýn í menningu og siði þjóðanna
    • einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu mál.
    • spænska málkerfisins - Orðaforða og atriðum er varða: matvæli og heilsa, matur og drykkur, verslun smáauglýsingar og hús
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja frásagnir og umræður um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
    • taka þátt í samræðum um afmörkuð undirbúin efni og um efni sem hann þekkir
    • miðla upplýsingum um málefni sem hann hefur kynnt sér
    • skrifa fremur stutta samfellda texta svo sem samantektir, endursagnir og frásagnir af eigin reynslu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meðtaka daglegt mál, s.s. samræður og fjölmiðlaefni ef hann þekkir til efnisins og talað er skýrt
    • tjá skoðun sína á lesnum texta ...sem er metið með... verkefnum, prófum og munnlegri framsögn
    • ræða við aðra af nokkru öryggi um efni sem hann þekkir vel
    • miðla upplýsingum um undirbúið efni í ræðu og riti
    • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra og beita til þess viðeigandi mál-og samskiptavenjum
    • hagnýta á mismunandi hátt efni ritaðra texta af ýmsum toga ...sem er metið með... verkefnum
    Fjölbreytt námsmat endurspeglar markmið áfangans í öllum færniþáttum í samræmi við evrópsku tungumálamöppuna (ETM). símat sem byggist á ýmsum munnlegum og skriflegum verkefnum sem unnin eru yfir önnina.