Í áfanganum læra nemendur að nota SQL-fyrirspurnarmálið og kynnast gagnagrunnum.
Markmið námskeiðsins er að stuðla að öflugri færni þátttakenda í notkun SQL-fyrirspurnamálsins. Nemendur læra að setja upp aðgerðir sem vinna úr upplýsingum sem geymdar eru í gagnagrunnum. Lögð er áhersla á frumkvæði, ábyrgð og almennar vinnureglur varðandi notkun á gagnagrunnum og SQL-fyrirspurnarmálinu.
Lögð er rík áhersla á að námskeiðið nýtist sem góður undirbúningur fyrir frekara nám eða störf. Kennslan byggist einkum á verkefnavinnu nemenda og skilum á verkefnum
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvað gagnagrunnur er
hvenær gagnagrunnar eru notaðir og notagildi þeirra
hvað fyrirspurnarmálið SQL er
almennum aðgerðum í SQL
hvernig kóðinn í SQL-fyrirspurnamálinu á að vera uppsettur
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að vinna með almennar fyrirspurnir í SQL-forritunarmálinu
að búa til einfaldar töflur í SQL-gagnagrunni
að setja inn efni í töflur í SQL-gagnagrunni
að eyða efni úr töflum í SQL-gagnagrunni
að eyða töflum úr SQL-gagnagrunni
að breyta töflum í SQL-gagnagrunni
að lesa fyrirmæli og geta greint þau til að sjá hvað er beðið um og geta framkvæmt það
sjálfstæðum vinnubrögðum
að nota Netið sem hjálpartæki
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
setja upp einfaldar töflur í SQL-gagnagrunnum
að geta unnið með algengustu SQL-fyrirspurnirnar
geta séð hvenær einhver kóði er SQL-kóði
geta nýtt þekkingu sína í SQL til að geta leyst raunveruleg verkefni
að geta leitað á Netinu að upplýsingum um aðgerðir sem hann skilur ekki vinna sjálfstætt að verkefnum
Þekking er metin jafnt og þétt yfir tímabilið með verkefnum unnum í tímum og heima, einnig með áfangaprófum.
Leikni er metin út frá vinnubrögðum við uppsetningu, byggingu og frágang SQL-fyrirspurna og einföldum gagnagrunnum.
Hæfnin er metin í verkefnavinnu og prófum út frá getu nemandans til þess að hanna og setja upp einfalda gagnagrunna og SQL fyrirspurnir. Einnig er hæfnin metin með því að nemendur lesa tilbúinn forritunarkóða og geti útskýrt virknina á bakvið hann.