Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1431427353.84

    Vefforritun II
    VFOR2PH05(FB)
    1
    Vefforritun
    forritun
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    FB
    Í áfanganum læra nemendur að vinna með PHP vefforritunarmálið til þess að nota í vefsíðugerð ásamt HTML og CSS. Markmið áfangans er að stuðla að öflugri færni þátttakenda í notkun á PHP, HTML og CSS forritunarmálum við að hanna vefsíður. Vefsíðurnar eru síðan hýstar á vefþjóni sem nemendur tengjast og vinna á í gegnum FTP forrit. Lögð er áhersla á frumkvæði, ábyrgð og almennar vinnureglur tengdar forritunarvinnu og vinnu á Netinu. Áhersla er lögð á að námskeiðið nýtist sem góður undirbúningur fyrir frekara nám eða störf. Kennslan byggist einkum á verkefnavinnu nemenda og skilum á verkefnum
    VFOR1HC05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvaða forritunarmál eru keyrð á miðlara (e. server-side) og hvaða forritunarmál eru keyrð á biðlara (e. client)
    • helstu grunnaðgerðum í PHP forritunarmálinu
    • hvernig vefforritunarmálið PHP vinnur með HTML og CSS í vefsíðugerð
    • hvernig COOKIES og SESSION eru notuð til að láta vefkerfi geyma upplýsingar tímabundið
    • hvernig á að leita að villum í forritunarkóðanum, greina þær, greina orsökina og leysa úr þeim
    • hvernig uppsetning á PHP forritunarkóða á að vera
    • hvar er gott að finna útskýringar á PHP forritunarkóðum á Netinu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • að vinna með helstu aðgerðir í PHP forritunarmálinu
    • að vinna með PHP forritunarkóða í tengslum við HTML og CSS forritunarkóða til að setja upp einfaldar vefsíður
    • að aðgreina smáskipanir í sérskjöl sem vefsíðan getur kallað í eftir þörfum
    • að lesa villuskilaboð og geta greint þau
    • að setja upp forritunarkóða á réttan hátt
    • sjálfstæðum vinnubrögðum
    • að nota Netið sem hjálpartæki
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • setja upp einfaldar vefsíður með notkun PHP, HTML og CSS forritunarmálanna
    • að samtengja aðgreindar smáskipanir sem eru gerðar með PHP við vefsíður með forritanlegum aðgerðum
    • lagfæra villur í forritunarkóða út frá villuskilaboðum
    • hafa forritunarkóðana rétt uppsetta
    • hafa vinnuskjöl sem notuð verða á Netinu rétt uppsett
    • hafa vinnusvæðin skipulögð
    • tengjast netþjónum með FTP forritum og færa skjöl á milli einkatölvu og netþjóns
    • vinna sjálfstætt að verkefnum
    • geta leitað á Netinu að upplýsingum um forritunarkóða sem hann skilur ekki
    Þekking er metin jafnt og þétt yfir tímabilið með verkefnum unnum í tímum og heima, einnig með áfangaprófum og stóru lokaverkefni. Leikni er metin út frá vinnubrögðum við uppsetningu, byggingu og frágang forritunarkóða. Hæfni er metin í verkefnavinnu og prófum út frá getu nemandans til þess að hanna og setja upp vefsíðu. Einnig er hæfnin metin með því að nemendur lesa tilbúinn forritunarkóða og geti útskýrt virknina á bakvið hann.