Lýsing: Í áfanganum eiga nemendur að læra að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði blaks. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Áfanginn er bóklegur og verklegur. Nemendur þjálfist í kennslu blaks. Efnisatriði: Knatttækni, tækniþjálfun, fingurslag, fleygur, „smass“, hávörn, uppgjafir, leikskipulag, sérhæfð þolþjálfun, leikreglur, teygjur, liðkun. Dómgæsla. Framkvæmd: Bókleg og verkleg, þar sem megináhersla er lögð á æfingakennslu nemenda. Nemendur taki þetta jafnhliða ÍÞRF2ÞB05 eða hafi lokið þeim áfanga.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
allri grunntækni blaks
mismun á þjálfun barna, unglinga og fullorðinna í blaki
leikreglum í blaki
undirbúningi og skipulagi blakæfinga
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að undirbúa, skipuleggja og halda blakæfingu fyrir börn að tólf ára aldri
dómgæslu í blaki
að kenna leikfræði blaks
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
undirbúa þjálfun og gera tímaseðil fyrir blak
skipuleggja þjálfun í blaki
dæma leiki hjá yngstu iðkendum
rita leikskýrslu í blaki
Í áfanganum er skriflegt lokapróf og nemendur skila ýmsum verkefnum varðandi heimsóknir, æfingakennslu og tímaseðlagerð.