Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1431681730.12

    Inngangur að náttúruvísindum
    NÁTV1IF05
    1
    Náttúruvísindi
    Inngangur að náttúruvísindum fyrir félagsvísindabraut
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum verður fjallað um náttúruvísindi í víðu samhengi, efnafræði, líffræði, jarðfræði og eðlisfræði og hvernig þessar greinar eru í grunninn byggðar á sömu viðfangsefnunum. Lögð er áhersla á orkuhugtakið, orkuauðlindir og nýtingu þeirra.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • uppbyggingu efna, allt frá frumefnum til vetrarbrauta
    • uppruna orku og ólíkum birtingarmyndum hennar
    • innri og ytri öflum jarðar og nýtingu þeirra (vatnsorka, vindorka, sólarorka, jarðvarmi, kjarnorka o.s.frv.
    • áhrifum af framleiðslu úr orku og notkun hennar í víðu samhengi t.d. kjarnorkuúrgangi, bruna lífrænna efna, gróðurhúsaáhrifum, fæðuframleiðslu, matvælaöryggi o.fl.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • ræða og kynna efni áfangans
    • lýsa því hvernig ólíkar greinar náttúruvísinda tengjas
    • útskýra uppbyggingu efnis (frá smáu upp í stórt)
    • útskýra hvaðan orka á jörðinni er upprunnin
    • útskýra tengsl lífmassa og fæðuframleiðslu
    • útskýra nýtingu matvæla og hvað erfðabreytt matvæli eru lýsa endurnýtingu orku og efna
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • ræða og kynna efni áfangans
    • vinna verkefni sem lýsa og útskýra orkunýtingu, framleiðslu matvæla o.fl.
    • beita gagnrýninni og skapandi hugsun við lausn verkefna úr námsefninu
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu.
    Námsmat skal vera fjölbreytt og byggja á verkefnavinnu með áherslu á leiðsagnarmat.