Marmið áfangans gengur út á að efla þrjá meginþætti: Teikningu sem tjáningarmiðil, með notkun mismunandi teikniefna og verkfæra. Myndgreiningu þar sem nemendur læra að formgreina listaverk og dýpka þannig skilning sinn á sjónrænum forsendum myndverka. Myndbyggingu þar sem nemendur læra að byggja upp eigin verk í form og lit. Mikil áhersla verður lögð á skissuvinnu og leit að myndefni.
hugtökum til rökstuðnings á vali fyrirmynda og sjónarhorna
hugtökum til að setja verk sín og annarra í listsögulegt samhengi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota mismunandi áhöld í teikningu
ná góðu valdi á frásagnarmáta teikningar
ná góðu valdi á listrænni tjáningu í teikningu
nýta sér reglur um formræna myndbyggingu
nota liti
rökræða um listaverk
nýta sér ljósmyndun við leit að viðfangefnum
ræða og kynna verk sín og annarra
nota stafræna tækni við efnisöflun og útfærslu hugmynda
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta beitt mismunandi teikniaðferðum eftir því hvert viðfangsefnið er
sýna fram á að hann skilji lögmál formrænnar uppbyggingar myndverka
meta tengsl inntaks og formrænnar framsetningar listaverka
rökstyðja myndbyggingu eigin myndverka
beita gagnrýninni hugsun við túlkun og úrvinnslu listaverka
vera fær um að byggja upp markvisst þróunarferli frá hugmynd að mynd
taka þátt í gagnrýninni umræðu um eigin verk og annarra
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni sem unnin eru jafnt og þétt yfir önnina. Vinnubrögð, virkni og listrænt gildi eru lögð til grundvallar námsmati. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg próf.
Þekking er metin út frá umræðum, skriflegum verkefnum og aðferðum við útfærslu verkefna.
Leikni er metin út frá færni í útfærslu verkefna.
Hæfni er metin út frá sjálfstæði og þróun hugmynda.