Markvissar tilraunir í blöndun lita: Mismunandi blöndunarþáttur lita kannaður, hvernig litur breytist út frá breytingum á tóni, blæ eða ljósmagni. Litgreining á jarðlitum. Skoðað hvernig litur breytist eftir mismunandi samhengi. Tilraunir með litalampa. Blöndun lita með ljósi og skuggavarp þar sem andstæður litur birtist í skugga. Samspil tónlistar og litar skoðuð. Túlkun á lit eftir persónulegri upplifun.
litgreiningu; greina liti og vita hvaða liti þarf til að blanda ákveðna liti úr umhverfinu
ljósi og skugga, þ.e. ljósi í lit og virkni þess í veruleikanum þar sem andstæðir litir birtast í skugga
áhrifum tónlistar á skynjun lita og forma (Vassily Vassilyevich Kandinsky)
blæbrigðum litar þegar hann við fyrstu sýn virðist einn litur en er svo margir við nánari skoðun
einlit (monochrome), að einn litur getur haldist sami litur þó svo að birtumagn hans aukist eða minnki
myndgreiningarforriti (Adobe kuler) og notkun þess við litgreiningu mynda í tölvum áhrifum litar á rýmiskennd á tvívíðum fleti
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita lögmálum litafræðinnar við blöndun lita
finna og greina liti í umhverfinu
sjá andstæða liti í skuggum
nota ljósmyndatækni við að taka myndir af skuggum
framkvæma tilraunir og setja þær fram á frambærilegan og persónulegan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta blandað hvern þann lit sem hann finnur í umhverfi sínu
nýta sér lögmál andstæðra lita; hvernig þeir vinna saman og hafa örvandi áhrif á virkni hver annars
nýta áhrif litar á myndbyggingu og áhrif á rýmiskennd
geta greint mismunandi litbrigði í einföldum lit
nota myndavél til þess að mynda virkni andstæðra lita eftir mismunandi ljósi
geta nýtt sér áhrif tónlistar á listsköpun sína
Áfanginn er símatsáfangi. Ástundun í tímum, virkni, frágangur, verklag, sjálfstæði í vinnubrögðum. Áfanganum er skipt niður í nokkur verkefni og heimavinnuverkefni. Lögð er áhersla á að nemendur gangi vel frá hverju verkefni fyrir sig með því að setja fram niðurstöður og prufur á frambærilegan hátt.