Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1431786823.97

    Raflagna staðall
    RAST2RB05
    1
    Raflagna staðall
    Rafvirkjabraut
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Nemendur kynnist stöðlum og reglugerðum um raforkuvirki. Viti hvernig ákvæðum reglugerða er framfylgt og þekki öryggisreglur. Þekki helstu tengimáta kerfa, álagsvarnir, lekastraumsvarnir og frágang jarðbindinga. Nemendur þekki ÍST 200-2006 og geti nýtt hann til að sækja sér upplýsingar um reglur og frágang.
    Grunndeild rafiðna
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Slysahættu í vinnuumhverfi rafiðnaðarmanna og helstu öryggisráðstöfunum gegn henni.
    • Raforkukerfi og rafbúnaði í íslenskum skipum.
    • Almennum kröfum í byggingarreglugerð til raflagna og rafbúnaðar í mannvirkjum
    • Magni, gerð og staðsetningu á rafbúnaði í raflögnum fyrir íbúðarhúsnæði.
    • Tengingum neysluveitna við lágspennudreifikerfi rafveitna.
    • Fyrirkomulagi og frágangi á mælitækjum fyrir raforkunotkun.
    • Reglugerð um rafmagnsöryggismál.
    • Grundvallarreglum um raflagnir bygginga.
    • Skilgreiningum íðorða um öryggi raflagna.
    • Mismunandi gerðum dreifikerfa og almennum eiginleikum raflagna í byggingum.
    • Helstu varnaraðgerðum gegn raflosti, hitaáraun, yfirstraum og spennutruflun.
    • Vali og uppsetningu á raflögnum og búnaði þeirra.
    • Sannprófun á öryggi raflagna í byggingum.
    • Kröfum til sérstakra lagna eða staða.
    • Sérákvæðum vegna staðsetningar virkja.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Leita sér upplýsinga í staðli
    • Velja búnað fyrir neysluveitur
    • Teikna og leggja upp almenna lögn fyrir heimili og smærri fyrirtæki
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Ráðleggja um efni og búnað skv staðli
    • Tengja rafmagnstöflu skv staðli
    • Leggja rafmagn við mismunandi aðstæður skv staðli.
    Kennsla sé sem mest verkefnamiðuð. 3 – 5 próf, munnleg eða skrifleg marki námsárangur yfir önnina. 5 sé lágmarks lokaeinkunn.