Nemendur öðlist vald á teikningalestri á stærri neysluveitum s.s þjónustu- og iðnaðarveitum allt að 200 Amper. Þá læra nemendur að teikna slíkar veitur; teikna sniðmyndir af gegnumtökum, afstöðumyndir auk grunnmynda. Lögð er áhersla að nemendur læri að magntölu- og kostnaðartaka ofangreindar veitur. Tölvutæknin er nýtt við gerð raflagnateikningana seinni hluta áfangans.
RLTK2RB05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Íslenskum staðali um raflagnateikningar fyrir neysluveitur allt að 200 A.
Heitum og hugtökum raflagnateikninga
Magntöku og kostnaðartöku raflagna
Helstu teikniforritum
Öllum almennum og sértækum teiknitáknum
Teiknireglurum og staðalákvæðium varðandi þurra-, raka– og rykuga staði.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Lesa úr raflagnateikningum.
Teikna í ofangreindar neysluveitur.
Beita tölvuforriti við gerð raflagnateikninga.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Velja og ákvarða efni fyrir raflagnir í öllum neysluveitum.
Nýta sér minnst eitt teikniforriti sem notað er við gerð teikninga
Velja og ákvarða búnað og raflagnaefni fyrir allar neysluveitur.
Magntaka og reikna kostnað á tölvtæku formi fyrir allar neysluveitur.
Verkefnavinna og próf. Lámarkseinkunn í áfanganum er 5.