Áfanginn er að mestu verklegur auk þess sem nemendur fá fræðslu um mikilvægi heilbrigðs lífsstíls og þjálfun í að setja sér lífsstílsmarkmið. Lögð er áhersla á að nemendur fái fjölbreytta hreyfingu sem styrkir hjarta- og æðakerfið, byggir upp vöðva og eykur liðleika. Leitast er við að hver og einn geti tekið þátt á sínum forsendum en að allir séu virkir.
Lífsstíll A og B, Hreyfing A og B
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
forsendum og áhrifum þjálfunar á líkama, heilsu og líðan
mismunandi aðferðum til heilsuræktar
mikilvægi upphitunar, liðleika- og styrktarþjálfunar
þoli, uppbyggingu þess og mismunandi þolþjálfun
slökun
fjölbreyttum möguleikum til hreyfingar
mikilvægi þess að setja sér raunhæf markmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
stunda líkams- og heilsurækt
stunda almenna og sérhæfða upphitun
stunda markvissa og fjölbreytta styrktar-, liðleika- og þolþjálfun
tileinka sér slökun
iðka æfingar og hreyfingu sem stuðla að bættri líkamsbeitingu
beita samvinnu sem stuðlar að tillitsemi og hvatningu
klæða sig til íþróttaiðkunar eftir aðstæðum, úti sem inni
setja sér raunhæf markmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta eigið þol, styrk og liðleika
skipuleggja eigin þjálfun og ná settum markmiðum
leysa af hendi æfingar og leiki sem viðhalda og bæta samskipti, líkamshreysti og heilbrigðum lífsstíl
glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams- og heilsurækt
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.