Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1432055142.27

    ART – Sjálfsstjórn
    FÉLF2SS02
    3
    félagsfærni
    Sjálfsstjórn, félagsfærni, siðferðislegar úrlausnir
    Samþykkt af skóla
    2
    2
    Gert ráð fyrir því að nemendur öðlist færni í að takast á við og ræða einfaldari og flóknari gerðir félagsfærni, siðferðismats og sjálfsstjórnar. Unnið er að bæta færni nemanda í mannlegum samskiptum, kenna nemendum að takast á við tilfinningar sínar (aðallega reiðina) og takast á við siðferðisklípur sem upp gætu komið í raunveruleikanum. Þjálfunin miðar að því að ýta undir ábyrgðarkennd og sjálfstjórn barna og unglinga og þjálfa þau í að ræða um tilfinningar og átta sig á þörfum sínum.
    FÉLF1SÚ03
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Muninum á einfaldri og flókinni félagsfærni. Sérstaklega unnið með að nemendur geti sett sig í spor annarra.
    • Mikilvægi siðferðis í daglegu lífi.
    • Hvað reiðistjórnun er og hvaða aðferðir eru til taks til að takast á við þessa tilfinningu og hún borin saman við líkar og ólíkar tilfinningar.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Takast á við flóknari félagsfærniatriði.
    • Meta eigin siðferðisbresti og styrkleika.
    • Takast á við flóknari reiðistjórnunaratriði og þau sett í samhengi við stjórn annarra tilfinninga.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Horfa gagnrýnum augum á eigin hegðun og geta rætt það við aðra.
    • Geta rætt við aðra um siðferðisleg álitamál
    • Geta rætt og metið eigin getu til þess að takast á við reiði og aðrar tilfinningar.
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.