Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1432215260.29

    Bókmenntir fyrri alda
    ÍSLE3BF05
    110
    íslenska
    bókmenntir fyrri alda
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum verður viðfangsefnið bókmenntasaga og bókmenntir fyrri alda; forn kveðskapur, sagnaritun, bókmenntir lærdóms-og upplýsingaraldar. Haldið verður áfram að þjálfa nemendur í ritun og heimildavinnu.
    ÍSLE2BR05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ritgerðarsmíð og heimildavinnu
    • orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
    • öllum helstu bókmenntahugtökum
    • mismunandi tegundum bókmennta og tímabilum í íslenskum bókmenntum fyrri alda.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • rita heimildaritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og greinargóðan hátt á blæbrigðaríku máli
    • ganga frá heimildaritgerðum og hvers kyns texta og að nýta sér uppbyggilega gagnrýni
    • skilja og nota viðeigandi stílbrögð, orðatiltæki og menningarlegar vísanir í tal- og ritmáli
    • draga saman og nýta á viðurkenndan og gagnrýninn hátt upplýsingar úr hvers kyns heimildum og meta áreiðanleika þeirra
    • flytja af öryggi vel uppbyggða kynningu á krefjandi efni
    • lesa sér til gagns og gamans texta frá fyrri öldum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrifa skýran og vel uppbyggðan texta og geta valið ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum
    • beita málinu á viðeigandi og árangursríkan hátt við mismunandi aðstæður
    • tjá rökstudda afstöðu og taka virkan þátt í málefnalegri umræðu
    • draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta, átta sig á samfélagslegri skírskotun og dýpri merkingu texta
    • sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
    • sýna þroskaða siðferðisvitund, víðsýni, sköpunarhæfni og samlíðan í málflutningi sínum, umfjöllun og verkum
    Námsmat er byggt á leiðsagnarmati þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Nemendur vinna fjölbreytt verkefni, skrifa heimildaritgerð, flytja fyrirlestra og leysa ýmsar kannanir og/eða próf.