Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1432215295.28

    Stærðfræði
    STÆR2VM05
    115
    stærðfræði
    Mengi, hnitakerfi, hornaföll, veldi og 2. stigs jöfnur
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum verður farið í einshyrnda þríhyrninga, hornaföll, hringi, hnitakerfi, bein lína, fleygboga, veldi, mengi og 2. stigs jöfnur.
    STÆR1RJ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • einshyrndum þríhyrningum
    • horn í hring
    • hornföllum í rétthyrndum þríhyrningum
    • hnitakerfi og beinni línu
    • veldareikningi
    • mengjum
    • 2. stigs jöfnum
    • fleygbogum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota hornaföll
    • nota táknmál stærðfræðinnar
    • nota reiknivél við lausn þeirra verkefna sem tilheyra áfanganum
    • nota veldareglur
    • leysa 2. stigs jöfnur
    • teikna beina línu og fleygboga í hnitakerfi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nota jöfnur við lausn ýmissa verkefna
    • nota mengjareikning
    • nota hornaföll til að finna horn og hliðar í þríhyrningum
    • beita skipulegum aðferðum við leit að lausn verkefna og geta útskýrt aðferðir sínar
    • fylgja röksemdafærslum og skilja þær
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.