Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1432653233.7

    Lífsleikni á framhaldsskólabraut 3
    NÁSS1UM05
    6
    Náms- og starfsfræðsla
    neysluvenjur, náttúruauðlindir, sjálfbærni, umhverfismál, umhverfissiðfræði
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Efni áfangans eru þættir sem snerta umhverfismál; sjálfbærni, náttúruauðlindir, umhverfissiðfræði, umhverfisvitund og neysluvenjur. Einnig er fjallað um borgaravitund; jafnrétti, staðalmyndir og lýðræði, alþjóðasamfélagið og fjölmenningu. Áhersla er lögð á tjáningu; flutning formlegra og hálf-formlegra erinda, framkomu og tjáningu eigin skoðana.
    NÁSS1ÁV05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hugtökum sem snerta umhverfismál og umhverfisvitund, s.s. sjálfbærni
    • umhverfismerkingum, eigin neysluvenjum og áhrifum þeirra á eigin velferð og umhverfið
    • formi tjáningar, hvernig skal undirbúa og flytja munnlegt erindi við mismunandi aðstæður
    • umfjöllun um alþjóðasamfélagið og fjölmenningu sem varða jafnrétti og lýðræði
    • þáttum sem hafa áhrif á samskipti og ágreiningsstjórn
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • afla og vinna með upplýsingar um nýtingu náttúruauðlinda
    • taka þátt í samræðum sem varða umhverfisvitund og sjálfbærni á ábyrgan og rökrænan hátt
    • greina og meta aðstæður er tengjast fjölmenningu, jafnrétti, lýðræði og staðalmyndum
    • undirbúa málflutning í mismunandi aðstæðum og færa rök fyrir skoðunum sínum og afstöðu
    • skoða samskipti, ágreining og tilfinningar á jákvæðan og hagnýtan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta áhrif eigin lifnaðarhátta á umhverfið og geta hagrætt neysluvenjum með tilliti til sjálfbærni
    • taka upplýsta afstöðu til ólíkra þátta sem tengjast fjölmenningu s.s. ólíkrar menningar, kynhneigðar og trúarbragða
    • meta og gera grein fyrir aðstæðum og þáttum sem tengjast fjölmenningu og alþjóðavitund
    • taka upplýsta afstöðu til almennrar umfjöllunar um umhverfismál
    • flytja mál sitt á sannfærandi og öruggan hátt, beita líkamanum rétt í flutningi
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.