ENSK1OM samsvarar hæfniþrepi A1/A2 í evrópska tungumálarammanum. Þjálfun í lestri og lesskilningi í þeim tilgangi að auka orðaforða. Nemendur vinna einföld, stutt verkefni sem þeir skila af sér ýmist munnlega eða skriflega. Farið yfir grunnatriði í málfræði. Þjálfun í ritun, hlustun og tjáningu.
ENSK1LS05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnhugtökum í málfræði (t.d. fleirtala, stigbreyting, tíðir sagna o.s.frv.)
grunnatriðum í ritun
byggingu mjög einfaldrar ritgerðar
lestri texta á ensku
aðferðum við að efla orðaforða sinn
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa og skilja texta þannig að þeir geti endursagt þá í ræðu og riti
tjá lesskilning í rituðu máli
skrifa einfaldan texta
hlusta á og skilja einfalda texta
halda uppi einföldum samræðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna með einfaldan enskan texta, bæði í lestri og ritun
halda stutta kynningu fyrir samnemendur og/eða kennara
hlusta á og skilja einfaldan enskan texta
taka þátt í umræðum um einföld málefni
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.