Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1432916020.74

    2. áfangi á framhaldsskólabraut
    ÍSLE1LR05
    65
    íslenska
    lestur og ritun
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Létt skáldsaga, stuttir textar, vísur og ljóð. Orðréttur texti til stafsetningarþjálfunar. Efni þar sem lögð er áhersla á grunnþætti málfræði. Persónuritun ýmis konar. Nokkur grunnhugtök í bókmenntum.
    ÍSLE1LL05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi góðrar lestrarkunnáttu
    • hefðbundnu ljóðformi
    • nokkrum undirstöðuhugtökum bókmennta
    • gildi fjölbreytts orðaforða
    • beygingareinkennum og greiningu í orðflokka
    • notagildi málfræði og réttritunar
    • vandaðri málnotkun
    • gildi þess að geta byggt upp texta og orðað hugsun sína
    • að tjá sig munnlega
    • að nýta sér endurgjöf
    • mikilvægi góðra vinnubragða og skýrrar framsetningar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa fjölbreytta texta
    • endursegja efni
    • greina brageinkenni
    • vinna með valin bókmenntahugtök
    • greina orð í orðflokka
    • beygja orð rétt
    • stafsetja
    • lesa upp fyrir hóp
    • setja verkefni skýrt og skipulega fram
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lesa sér til ánægju og gagns
    • íhuga lesið efni og tjá sig um það
    • útskýra einkenni bundins máls og nota valin bókmenntahugtök
    • skrifa eftir upplestri
    • nýta orðaforða, beita málinu og rita rétt
    • skrifa rétt upp byggða ritgerð á góðu máli og huga að stafsetningu
    • gera efni skil
    • lesa upp og kynna verkefni
    • vanda vinnubrögð
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.