Í þessum byrjunaráfanga byggingatækni er fræðilegur grunnur byrjunaráfanganna í tréiðnum kynntur fyrir nemendum. Fjallað er um umgengni við efni, vélar, verkfæri og vinnustaðinn með áherslu á verkstæðishluta iðngreinarinnar. Lögð er áhersla á að nemandinn tileinki sér faglega nálgun á þeim verkefnum sem unnin eru samhliða áfanganum. Kenndar eru samsetningar, lausnir og hugtök sem leggja grunninn að góðum vinnubrögðum við almenna trésmíði. Einnig vinna nemendur verkefni tengd áfanganum með það fyrir augum að auka áhuga þeirra og kynna þeim mikilvægi þekkingar og fagmennsku í iðngreininni.
Efnisatriði/kjarnahugtök:
Handverkfæri, rafmagnshandverkfæri, val og umhirða á verkfærum, stillingar, brýnsla, vinnubrögð, öryggismál, hefilbekkur, borvél, borun, handfræsari, fræsing, handpússvél, trésamsetningar, geirnegling, blindtappi, blöðun, díll, dílun, fals, fingrun, fjöður, geirungssamsetning, grunntappi, hálft-í-hálft, hnakki, hornasamsetning, málvik, negling, nót, raufarstykki, skrúfun, sporun, töppun, límingar, pússning, slípun, efnisval, efnisfræði, viðarfræði, eðliseiginleikar viðar, viðarflokkun, styrkflokkun, útlitsflokkun, ÍST DS 413, ÍST INSTA 142, ÍST EN 519, viðarmerkingar, tréþurrkun, viðarlím, yfirborðsefni, yfirborðsmeðferð.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
uppbyggingu og notkun helstu rafmagnshandverkfæra
öryggisþáttum og viðhaldi rafmagnshandverkfæra og trésmíðavéla
vinnuaðstöðu og vinnuumhverfi
algengasta smíðavið og smíðisfestingum
undirstöðuatriðum við skipulagningu og verkferla í byggingariðnaði
reglugerðaákvæðum varðandi vinnuumhverfi
helstu fagheitum í tréiðnaði
grunnatriðum við gerð efnis- og aðgerðalista
helstu mælitækjum og aðferðum
helstu eðliseiginleikum viðar og þurrkun timburs
einstökum samsetningum og notkunarsviði þeirra
mismunandi tegundum verkfæra, véla og efna
algengustu gerðum og notkunarsviðum helstu límtegunda í tréiðnaði
nöglum og skrúfum og notkun þeirra í trésmíði
efni og yfirborðsmeðhöndlun festinga
grunnatriðum í yfirborðsmeðferð smíðaviðar og plötuefnis
öryggisreglum og öryggisráðstöfunum við yfirborðsmeðferð
uppbyggingu og notkun algengustu trésmíðavéla
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota helstu trésamsetningar við einfalda trésmíði
beita faglegri nálgun við úrvinnslu verkefna
nota rétta staðsetningu og líkamsbeitingu við vélavinnu
velja snúnings- og mötunarhraða fyrir trésmíðavélar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
umgangast og nota rafmagnshandverkfæri og önnur handverkfæri
aðlaga sig að mismunandi vinnuumhverfi
beita öryggisreglum og nota öryggisbúnað sem notaður er við véltrésmíði
velja efni og verkfæri eftir eðli verkefnis
Mælt er með því að námsmat byggist á verkefnavinnu (u.þ.b. 80%) og einu eða fleiri skriflegum prófum (20%).