Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1433174213.22

    Stærðfræði
    STÆR1SF05
    61
    stærðfræði
    Fornám í stærðfræði
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er farið í forgangsröð aðgerða, almenn brot, bókstafareikning, jöfnur, prósentur og hnitakerfi. Stefnt er að því að byggja upp jákvætt viðhorf og efla sjálfstraust nemenda hvað varðar stærðfræði.
    Einkunn 1-4 á grunnskólaprófi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • undirstöðuatriðum um talnameðferð
    • aðgerðum á heilum tölum, forgangsröð aðgerða og notkun sviga
    • styttingu og lengingu brota, samnefnara, samlagningu brota og margföldun brota
    • algengum prósentureikningi
    • undirstöðuatriðum algebru og hvernig bókstafir eru notaðir til þess að tákna stærðir
    • rétthyrndu hnitakerfi í fleti
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja fram og rökstyðja niðurstöður sínar með skýrum hætti
    • nota vasareikni við lausn viðfangsefna
    • nota stærðfræðileg vinnubrögð
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • fást við stærðfræðileg viðfangsefni dagslegs lífs
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og geta unnið með þau
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra á viðeigandi hátt
    • greina og hagnýta upplýsingar á sviði stærðfræði sem birtast m.a. í fjölmiðlum
    • nota jöfnur við lausn ýmissa verkefna
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.