Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1433259552.55

    Almenn matreiðsla
    MATR1AM05
    2
    matreiðsla
    hreinlæti, hráefni, matreiðsla, næring
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Nemendur matreiða ýmsa hagnýta, fljótlega og skemmtilega rétti. Kennd er meðferð hráefnis og um næringarinnihald matvæla, hreinlæti og vinnubrögð í eldhúsi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnhráefnum og nýtingu þeirra til matargerðar.
    • meðferð hráefnis
    • næringar- og orkuinnihaldi matvæla
    • hreinlæti og vinnubrögðum við matreiðslu
    • meðhöndlun, umgengni og meðferð matvæla
    • mikilvægi þess að ganga vel um vélar, tæki og handverkfæri
    • viðbrögðum við fyrstu hjálp og mikilvægi öryggismála og vellíðunar á vinnustað
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • almennum aðferðum og verklagi í matreiðslu á hefðbundnum heimilismat
    • meðhöndla hráefni með hliðsjón af mismunandi matreiðsluaðferðum
    • meta næringargildi máltíða
    • beita hnífum, handverkfærum og tækjum í eldhúsi
    • að beita aðferðum og vinna eftir skipulögðum verkferlum sem koma í veg fyrir dreifingu og fjölgun örvera í matvælum
    • greina og lesa einfaldar uppskrifir og framleiðsluleiðbeiningar og fylgt þeim eftir undir handleiðslu tilsjónarmanns á vinnustað og/eða kennara
    • þekkja takmörk sín í mateiðslu og vinna í hópi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja matreiðsluaðferðir sem hæfa hráefninu hverju sinni ...sem er metið með... verklegum æfingum
    • skipulagt og eldað máltíð út frá næringargildi, hollustu og ráðlögðum dagsskammti ...sem er metið með... verklegum æfingum
    • vera sjálfbjarga í almennri eldamennsku ...sem er metið með... verklegum æfingum
    • nýta hráefni á sjálfbæran og hagkvæman hátt ...sem er metið með... verklegum æfingum
    • forgangsraða einföldum verkþáttum og tryggja eðlilegt flæði verkferla ...sem er metið með... verklegum æfingum
    • skilja mikilvægi þess að bera virðingu fyrir umhverfinu og því hráefni sem unnið er með ...sem er metið með... verklegum æfingum
    • Nýta þekkingu sína til að elda fjölbreytilegan mat ...sem er metið með... verklegum æfingum
    • Nemandi þjálfast í skapandi umræðu um matreiðslu og orðfæri greinarinnar. ...sem er metið með... verklegum æfingum
    • Getur hagnýtt upplýsingatækni og stærðfræðiþekkingu við lausn verkefna tengd matreiðslu. ...sem er metið með... verklegum æfingum
    Fjölbreytilegt námsmat með áherslu á verklegar æfingar, símat, tíða endurgjöf og leiðsögn.