Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1433326630.95

    Vinnustaðanám
    VINN2HU20
    2
    Verknám
    Vinnustaðanám
    Samþykkt af skóla
    2
    20
    FB
    Í þessum áfanga fara nemendur í nám á vinnustað og getur nemandinn verið á mörgum vinnustöðum eftir verkefnum en vinnan er samræmd og skipulögð af skóla. Nemandinn á að vinna við neðangreinda verkþætti og skal öðlast þjálfun, leikni og hæfni í að vinna við þá. Vægi verkþátta er eins og greint er hér fyrir neðan. Eftirfylgni með vinnu nemandans á tilgreindum verkþáttum á að vera með ferilbók sem skóli og nemandi fylla inn í eftir framvindu. Verkþættir - Heild vinnustaðanáms - Skipting á áfangann Timburhús - 6% -11% Gluggar og útihurðir - 3% - 6% Viðhald og endurbætur húsa - 17% - 33% Sólpallar og skjólveggir - 6% - 11% Veggir og klæðningar innanhúss - 17% - 33% Innréttingar og innihurðir - 3% - 6% SAMTALS - 51% - 100% Efnisatriði/kjarnahugtök: Áfella, álag, ásetuflötur, ásetuklossi, einangrunargler, ferskloftsventill, festijárn, festingar, flatt þak, fljótandi gólf, smíðamál, sperra, gluggi, gólfbiti, gólfklæðning, grindarbyggt, hitaeinangrun, hornlína, hornsperra, hurðir, hæðarskil, klæðning, kverklína, kverksperra, liggjandi klæðning, ljósop, loftræst klæðning, loftræsting, mæniás, mænislína, plötuklæðning, rakavarnarlag, risþak, skammbiti, skánegling, skástífur, skúrþak, spennivídd, sperrutær, sperruhæð, mænir, sperrulengd, standandi klæðning, glerull, steinull, tréstigi, stífing, sylluhak, sylluhæð, togbiti, tveggja þrepa þétting, úrtök í gólfbita, útihurð, útsogsventill, útveggir, valmaþak, vatnsbretti, veggir, vexlun, loftræsting, vindpappi, vindstífandi plötur, vindþétting, vinnupallar, þak, þakhalli, þakgerð, þakgluggi, þakkvistur, þakvirki, þéttilög, þrýstigagnvarið timbur, útihurð, útigluggi, innigluggi, heiltré, plötuefni, ál, plast, gler, spjöld, karmur, skrá, lamir, bréfalúga, þéttilisti, yfirborðsmeðferð, stál, þröskuldur, glerlisti, opnanlegur gluggi, opnanlegt fag, viðartegundir, viðarútlit, viðareiginleikar, viðarþrútnun, viðarlíffræði, trjáskaðar, styrkleiki viðar, viðarraki, viðarrýrnun, málvik, gagnfúavörn, límingar, tölvustýrðar vinnslustöðvar, kíl-vélar, hraðastillingar, stillitími, spindill, fræsihaus, lamaborvél, límáburðarvél, lökkunarbúnaður, slípivél, tappi, tappavél, töppun, límfelling, fals, vatnsrauf, vatnshalli, skrúfufestingar, hálft-í-hálft, sniðfelling, fingrun, blöðun, sporun, klofun, fleygur, nót, skapalón, slípun, pússun, samsetning, viðloðun, lás, hurðarhúnn, einangrunargler, einangrun, þéttiefni, bæsefni, lakk, málning, kítti, áfellur, karmlistar, sólbekkir, frágangslistar, þéttilistar, hurðarstál, gluggajárn Naglfastar innréttingar, eldhúsinnréttingar, fataskápar, viðarspónn, spónlagning, spónskurður,spónlíming, spónaplötur, krossviður, trétrefja eða MDF-plötur, harðplast, gler, skrúfur, hefti,smíðistengi, lamir, dílun, límfelling, fals og nót, skúffa, ganglisti, hillur, borðplata, ljósakappi,frágangslisti, nót og fjöður, töppun, flögusamsetning, hornasamsetning, geirungssamsetning, rammasamsetning, yfirfelldar lamir, innfelldar lamir, utanáliggjandi lamir, plötusög, kantlímingarvél, spónsax, spónlímingarvél, spónlagningarpressa, slípivélar, lökkunarbúnaður, málningarbúnaður, lakk, málning, skapalón, vinnsluhraði, sökkull, skápabrautir, ÍST 22:1971 eldhúsinnréttingar.
    3 annir í skóla og fyrri hluti vinnustaðanáms.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismunandi útfærslum á undirstöðum timburhúsa.
    • eiginleikum og vali á réttu yfirborðsefni, t.d. fúavarnarefni.
    • eiginleikum og vali á réttum festingum og þéttiefni vegna ísetningar glugga og útihurða.
    • lögum og reglugerðum sem fjalla um gömul hús.
    • helstu byggingastílum og friðun gamalla húsa.
    • greiningu steypuskemmda og orsökum þeirra.
    • útfærslum á undirstöðum fyrir sólpalla.
    • eiginleikum og vali á réttu efni í sólpalla og skjólgirðingar.
    • eiginleikum og vali á réttu efni sem notað er í innveggi og klæðningar.
    • kröfum um innveggi og klæðningar sbr. byggingareglugerð.
    • kerfisveggjum og kerfisloftum.
    • mismunandi innréttingum, t.d. eldhús- bað og þvottahúsinnréttingum og fataskápum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • ganga frá vatnsbrettum, áfellum og listum vegna smíði timburhúsa
    • ganga frá undirstöðum fyrir timburhús.
    • ganga frá gluggum í steypumót
    • sjá um ísetningu glugga og útihurðir eftir uppsteypu húsa.
    • taka úr fyrir skrám, stafjárni og staðsett lamir vegna útihurða.
    • glerja glugga og þekkja mismunandi glerjunaraðferðir.
    • skipta um eða gera við fúna glugga og útihurðir.
    • smíða sólpalla.
    • setja upp skjólveggi.
    • setja upp hleðslugrindur.
    • setja upp og rétta af veggjagrindur, t.d. staðsetja stoðir og glugga- og dyragöt.
    • setja upp hljóðeinangrandi- og eldveggi.
    • setja upp veggjagrind og rétta af fyrir útveggi.
    • setja upp og rétta af loftagrind (rafmagnsgrind).
    • smíða timburgólf og klæða þau, leggja fljótandi og gegnheilt parket.
    • slípa og lakka timburgólf.
    • setja saman innréttingar.
    • setja upp innréttingar.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • framkvæma lekaleit og nota réttar aðferðir við þéttingu vegna leka.
    • sjá um viðhald og endurbætur innanhúss.
    • fara að kröfum, reglum og stöðlum um styrkleika í burðarvirki timburhúsa.
    • reisa burðarvirki, klæða veggi og þök timburhúsa.
    • nota yfirborðsefni
    • beita réttum aðferðum við þéttingar glugga og útihurða.
    • greina fúaskemmdir í húshlutum og meta umfang þeirra.
    • endurbyggja og breyta burðarvirki veggja og þaka í timburhúsum.
    • endurglerja gamla glugga.
    • skipta um og gera við utanhússklæðningar.
    • framkvæma steypuviðgerðir og þekkja eiginleika þeirra.
    • pússa upp glugga og útihurðir og yfirborðsmeðhöndla á ný.
    • endureinangra húshluti.
    • ganga frá einangrun útveggja, milliveggja og lofta, sbr. byggingareglugerð.
    • ganga frá loftræstingu þaka, vindvörn og rakavarnarlagi, sbr. byggingareglugerð.
    • stilla af, festa og þétta innihurðaramma.
    Mælt er með því að námsmat byggi á verkefnavinnu nemenda ásamt samantekt.