Unnið að aukinni færni nemandans í hlustun, tali, lestri og ritun, jákvæðni gagnvart faginu og trú á eigin getu. Jafnhliða nýju efni eru orðaforði og málfræðiatriði, sem komið hafa fram í undanfaranum, rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er lögð sérstök áhersla á samtalsæfingar í para- og/eða hópvinnu. Viðfangsefnin eru m.a. tengd daglegu lífi, atvinnu, ferðalögum, fríi og liðnum atburðum. Veruleg áhersla er á aukinn orðaforða, málfræði og málskilning. Nemendur eru þjálfaðir í tali og ritun í tengslum við námsefnið. Nemendur fá fræðslu um þjóðlíf, siði og venjur samhliða námsefninu.
ÞÝSK1HL05 (ÞÝS1A05)
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
almennum fyrirmælum kennara á þýsku í kennslustofunni.
daglegu talmáli þegar talað er við hann hægt og skýrt með þeim orðaforða sem hann þekkir.
notkun þýsk-íslenskar orðabókar við upplýsingaöflun.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
fylgja einföldum fyrirmælum og skilja helstu kveðjur og kurteisisávörp.
lesa einfalda texta með algengum orðaforða sem tengist nemanda, umhverfi hans og áhugamálum.
taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir og beita kurteisis- og málvenjum við hæfi.
segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér, fjölskyldu sinni og atburðum daglegs lífs með því að beita orðaforða og framburði á réttan og skýran hátt.
skrifa stuttan, einfaldan texta um sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi, skrifa skilaboð o.fl.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt sem metið er með hlustunaræfingum og -prófum.
skilja einfalda lestexta sem metið er með skriflegum og munnlegum spurningum um innihald texta.
taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir og segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér, fjölskyldu sinni og atburðum daglegs lífs sem metið er með samtalsæfingum og munnlegu prófi.
skrifa stuttan einfaldan texta um sjálfa sig og sitt nánasta umhverfi sem metið er með ritunaræfingum og ritun á prófum.
Hæfni nemenda er metin með hlustunarprófum, prófum í lesskilningi, ritunarprófum og munnlegum prófum.