Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1433423410.25

    Persónur og leikendur
    ÍSLE3PL05(SB)
    116
    íslenska
    Leikhús og leikhúsbókmenntir
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    SB
    Í áfanganum er leikhúsið í víðum skilningi námsvettvangurinn. Nemendur kynnast íslensku leikhúsi og því sem það hefur upp á að bjóða hverju sinni. Þeir lesa valdar leikbókmenntir, sækja leiksýningar og fara í vettvangsferðir í tengslum við efni áfangans. Nemendur fræðast um leikrit sem sérstaka bókmenntagrein og skoða þau í samhengi við strauma og stefnur sem og víxlverkun þeirra við samtímann, samfélag og einstaklinga. Þá er lögð áhersla á að nemendur þjálfist í að mynda sér skoðun og tjá hana ásamt því að kynna sér skoðanir annarra.
    Nemandi skal vera kominn á 3. þrep í íslensku
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hugtökum sem notuð eru við greiningu leikbókmennta
    • formlegum og hugmyndalegum einkennum valinna leiksýninga
    • í hverju leikhúsgagnrýni er fólgin
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita hugtökum bókmenntafræðinnar til greiningar á leikbókmenntum
    • greina, túlka og njóta sviðslista
    • viðra eigin hugmyndir og.setja þær fram munnlega og skriflega
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sækja leiksýningar og setja í samhengi við samfélag sitt, einstakling og samtíma
    • beita gagnrýninni hugsun og setja fram skoðanir sínar
    • frekari þátttöku í menningarsamfélagi með því að njóta leiksýninga og skyldra menningarviðburða
    Í áfanganum er símat. Vinna nemenda verður metin með smærri og stærri verkefnum, leikhús- og vettvangsferðum og virkni og þátttöku í umræðum.