Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1433497971.51

    Aukinn lesskilningur og frumhugtök danskrar málfræði
    DANS1LF05(SB)
    33
    danska
    Lesskilningur, frumhugtök málfræði
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    SB
    Í þessum áfanga skal fyrst og fremst leitast við að auka sjálfstraust nemandans í dönsku. Stuttir textar með einföldum orðaforða eru lesnir og ræddir. Orð sem bera hvern texta uppi eru þjálfuð með stuttum ritunaræfingum og hlustunaræfingum sem tengjast efni viðkomandi texta. Kennd eru undirstöðuatriði danskrar málfræði, s.s. nútíð sagna. Orðaforði er og styrktur með ítrekuðum spurningum úr texta. Hlustun er þjálfuð og reynt er að tengja hana þeim orðaforða sem unnið hefur verið með í áfanganum. Léttar og einfaldar talæfingar eru gerðar í tengslum við orðaforða les- og ritunarefnis. Einfaldar málvenjur eru kenndar
    Einkunn 0-5 úr grunnskóla
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • orðaforða sem lestur stuttra og einfaldra lesbókartexta byggir á
    • frumhugtök danskrar málfræði, s.s. greining orðflokka ( nafnorða , fornafna, sagna og töluorða)
    • helstu hefðum í uppsetningu og skipulagi ritaðs máls s.s. einföldum bréfum, lýsing á herberginu, áhugamálum, fjölskyldunni og endursögnum stuttra textabrota o.s.frv
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja einfalt talað má
    • skilja stutta rauntexta eins og einfaldar stuttar blaðagreinar
    • rita einfalda texta t.d. bréf og endursagnir úr lesnu efni
    • hlusta á efni tengt lesefni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta endursagt í rituðu máli innihald stuttra texta
    • geta beitt einfaldri málnotkun við ritun einfalds texta s.s. að skrifa texta í nútíð á dönsku
    • geta skrifað einfaldan texta um efni frá eigin brjósti s.s. segja frá fjölskyldu sinni, herberginu sínu, hvað gert er með vinum o.s.frv
    • geta hlustað og skilið einfalt talað mál tengt þeim textum sem áður hefur verið unnið með
    Námsmat ætti að vera stöðugt og alhliða og endurspegla kunnáttu, færni og virkni nemandans í lesskilningi, ritun um einfalt yfirfarið efni og skilningi á einföldu töluðu máli sem tengist því efni sem áður hefur verið farið í. Framfarir nemenda eru stöðugt metnar og leggja skal áherslu á að yfirferð sé í takt við getu nemandans. Nauðsynlegt er að efla sjálfstraust nemendans og láta hann finna að um framfarir sé að ræða, nota hrós mikið þar sem við á. Námsmatið þarf að endurspegla markmiðin og áherslupunkta kennslunnar, vera uppbyggjandi og áhugavekjandi. Nauðsynlegt er að nemendum sé ávallt ljóst hvað er verið að meta hverju sinni.