Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1433762391.48

    Leiðtogaþjálfun
    LEIÐ1JS05
    1
    Leiðtogaþjálfun
    Jafningjastjórnun og samábyrgð
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Farið verður yfir helstu þætti sem skipta máli varðandi jafningjastjórnun og samábyrgð, uppbyggingu félagslífs, stjórnun fjármála, verkefnastjórnun, jafnrétti, kynhlutverk, lýðræðisleg og sjálfstæð vinnubrögð, HEF og aðra áhersluþætti í skólastarfinu. Lögð er áhersla á gagnrýna hugsun og að styrkleikar hvers og eins fái að njóta sín. Áfanginn er einstaklingsmiðaður því hlutverk hvers nemanda innan nemendafélagsins er mismunandi.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • samfélagslegum gildum, siðgæði, mannréttindum og jafnrétti
    • áhrifum fyrirmynda og staðalímynda á eigin ímynd og lífstíl
    • vinnulagi sem nýtist til undirbúnings fyrir frekara nám
    • áhrifum fyrirmynda og staðalímynda á eigin ímynd og lífstíl
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tjá sig á skýran, ábyrgan og skapandi hátt
    • taka þátt í samræðum, færa rök fyrir máli sínu og virða skoðanir annarra
    • vera verklega sjálfbjarga
    • beita skapandi hugsun í öllu starfi
    • vinna á sjálfstæðan, ábyrgan og skapandi hátt undir leiðsögn
    • umgangast umhverfi sitt með sjálfbærni í huga
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tjá hugsanir sínar og tilfinningar í rökréttu samhengi
    • virkja sínu sterkar hliðar sínar á skapandi hátt
    • geta átt jákvæð og uppbyggileg samskipti og samstarf við annað fólk
    • sýna lífsgildum, mannréttindum og jafnrétti virðingu
    • vera virkur og ábyrgur borgari í lýðræðislegu nær- og fjærsamfélagi
    • tjá hugsanir sínar og tilfinningar í rökréttu samhengi