Kröfur áfangans samsvara hæfnisþrepi A2 í Evrópska tungumálarammanum. Í áfanganum er lögð áhersla á að þjálfa grunnþætti tungumálanáms, þ.e. lestur, tal, ritun og hlustun.
ENSK1EU05 eða einkunn 5-7 á grunnskólaprófi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
málfræði og flóknari setningaskipan
sérvöldum bókmennta- og fjölmiðlatextum
uppbyggingu ritunarverkefna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skrifa enska texta
rita formlega og óformlega ensku
taka þátt í almennum samræðum
lesa fjölbreytta texta
tjá sig munnlega og skriflega um tiltekin efni
færa rök fyrir máli sínu og í munnlegri tjáningu frammi fyrir jafningjum sínum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka þátt í almennum samræðum, lestri fjölbreyttra texta og í skriflegri og munnlegri tjáningu um ákveðin málefni
skilja daglegt máli og almennt fjölmiðlaefni
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá