Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandinn öðlist almenna undirstöðuþekkingu og þjálfun í teiknifræðum. Fjallað er um fallmyndun, ásmyndun og fríhendisteikningu. Nemandinn öðlist færni í meðferð og notkun mæli- og teikniáhalda, myndrænni vinnu með viðfangsefni starfsgreina. Að auki hlýtur nemandinn grunnþjálfun í gerð vinnuteikninga og þrívíðra rissteikninga ásamt lestri teikninga.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi teikniaðferðum, s.s. fríhendisteikningu og fallmyndun
upplýsingamiðlun með tæknilegum teikningum
meðferð og notkun teikni- og mæliáhalda
tvívíðum og þrívíðum vinnuteikningum
lestri teikninga
uppsetningu teikninga á vinnublað, áritun og frágangi þeirra
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa hornréttar fallmyndir
lesa sneiðmyndir af einföldum hlutum
teikna einfaldar vinnuteikningar með fallmyndun og nota við það viðeigandi teikniáhöld
lesa og skilja einfaldar tæknilegar vinnuteikningar og einfaldar þrívíðar teikningar
teikna ásmyndir af einföldum hlutum
teikna fríhendis
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja vinnublað, árita og ganga frá einföldum teikningu
miðla upplýsingum á skilvirkan hátt
málsetja einfaldar vinnuteikningar eftir viðeigandi reglum, venjum og stöðlum í mismunandi mælikvörðum
nýta sér teiknikunnáttu í starfi
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.