Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1433804338.59

    Logsuða og logskurður
    LOGS1PS03(AV)
    3
    Logsuða
    Plötusuða
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    AV
    Í áfanganum lærir nemandinn að umgangast gashylki, logsuðu- og logskurðartæki. Hann lærir að fylgja suðulýsingu, logsjóða plötujárn í suðustöðum PA, PC og PF með I-rauf. Nemandinn fær þjálfun í að lóða og logskera fríhendis og bregðast rétt við ef hættu ber að höndum. Farið er yfir brunahættu vegna loga og neistaflugs, sprengihættu vegna áhrifa acetýlens á eir og áhrifa súrefnis á olíu og feiti og vegna íláta sem innihalda eða hafa innihaldið eldfim efni. Farið er í undirstöðuatriði heilsuverndar, hlífðarfatnað og hlífar.
    engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi hlífðarfatnaðar og hlífa ásamt heilsuvernd á vinnusvæði
    • gashylkjum, meðferð þeirra við geymslu og flutning, litamerkingum og frágangi topploka
    • notkunarsviði acetýlens og súrefnis
    • suðuloga, blöndu hans og hitastigi
    • áhrifum kolandi loga, súrefnisríks og hlutlauss loga á suðupollinn
    • gerðum og samsetningu raufa og áhrifum þeirra á spennu
    • ástæðum þess að ekki sé hægt að logskera alla málma
    • virkni lóða og lóðdufts
    • staðlinum ÍST EN 287-1 um hæfnispróf
    • staðlinum ÍST EN 5 817 um mat á suðum og suðugalla
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota suðulóð og lóðduft
    • setja upp mæla á hylki, slöngur og sköft
    • sjóða 1 – 3 mm plötustál með I-rauf í PA, PF og PC
    • stilla réttan vinnuþrýsting
    • logskera stál fríhendis
    • sjóða stúfsuðu í plötu í stöðum PA, PC, og PF
    • nota hlífðarfatnað og öryggisbúnað
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja hlífðarbúnað og hlífar í samræmi við aðstæður
    • stilla suðutæki í samræmi við notkun
    • velja réttan vinnuþrýsting
    • velja suðuspíssa samkvæmt efnisþykkt
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.