Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1433944199.75

    Heilbrigðisfræði
    HBFR1HH05(AV)
    9
    heilbrigðisfræði
    forvarnir, heilbrigðisvandamál, heilbrigðisþjónusta
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    AV
    Í áfanganum er heilbrigðishugtakið skilgreint. Lögð er áhersla á hlutverk og sögulega þróun heilbrigðisfræði og áhrif hennar á nútíma heilbrigðismál. Fjallað er um helstu heilbrigðisvandamál í nútíma samfélagi og forvarnir gegn þeim. Fjallað er um skipulag heilbrigðisþjónustunnar og helstu stofnanir, sem móta stefnu í forvörnum, heilsueflingu og heilbrigðisfræðslu. Einnig er fjallað um smitsjúkdómavarnir, kynsjúkdómavarnir, tóbaksvarnir, áfengis- og vímuefnavarnir, geðvernd, beinvernd og mæðra- og ungbarnavernd. Fjallað er um umhverfisheilbrigðisfræði og tengsl mengunar og sjúkdóma skoðuð ásamt helstu mengunarvörnum. Áhersla er lögð á forvarnarstarf gegn sjúkdómum og slysum, áhættuþætti sem þeim tengjast og hvernig einstaklingar geta haft áhrif á eigið heilbrigði.
    engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • heilbrigðishugtakinu
    • sögulegri þróun heilbrigðisfræði og áhrifum á heilbrigðismál
    • helstu heilbrigðisvandamálum í nútíma samfélagi og forvörnum gegn þeim
    • uppbyggingu og skipulagi heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi
    • aðferðum og aðgerðum sem stuðla að heilsueflingu og forvörnum sjúkdóma
    • ábyrgð einstaklingsins á eigin heilsu
    • helstu umhverfisþáttum sem ógnað geta heilbrigði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lýsa uppbyggingu og skipulagi heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi
    • afla á fjölbreyttan hátt þekkingar um aðgerðir og aðferðir sem stuðla að slysavörnum, heilsueflingu og forvörnum sjúkdóma
    • sýna í verki að hann tekur ábyrgð á eigin heilsu
    • gera grein fyrir umhverfisþáttum sem geta ógnað heilbrigði manna
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • útskýra heilbrigðishugtakið út frá mismunandi menningarheimum
    • greina samspil lífsstíls og heilsu
    • greina eigin lífsstíl og áhættuþætti tengda honum
    • álykta um áhrif heilbrigðisfræðinnar á þróun heilbrigðismála í nútímanum
    • miðla á skapandi hátt upplýsingum um helstu heilbrigðisvandamál og forvarnir þeirra
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.