Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist áframhaldandi almenna þekkingu og þjálfun í teiknifræðum. Áfanginn skiptist í þrjá meginþætti: flatarteikningu, fallmyndun og
yfirborðsútflatninga og fríhendisteikningu. Í áfanganum er gert ráð fyrir að nemendur öðlist frekari færni í meðferð og notkun mæli- og teikniáhalda, myndrænni vinnu með viðfangsefni starfsgreina, þjálfist í lestri og gerð vinnu-teikninga, fríhendisrissteikninga, gerð flatarmynda og útflatninga. Áfanginn er undirbúningur fyrir fagbundið nám í teiknifræðum.
GRTE1FF05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
undirstöðuatriðum í flatarteikningu
undirstöðuatriðum rúmteikningar með tilliti til mismunandi sjónarhorna, raunstærða og útflatningsmynda
undirstöðuaðtriðum fríhendisteikningar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
teikna rúmmyndir og útflatninga
notkun teikniáhalda
að skipta línum og hornum með bogaskurði
teikna einföld flatarfræðileg form og einfaldar tvívíðar myndir með teikni- og mæliáhöldum
teikna hornréttar fallmyndir ásamt sneiðskorningum af reglulegum rúmfræðilegum frumformum
fá fram raunstærðir á línum og flötum
teikna yfirborð útflatningsmynda af reglulegum rúmfræðilegum formum.
teikna fríhendis tvívíðar útlínumyndir með sjón- og blýantsmælingum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lesa vinnuteikningar
greina raunstærðir og teikna útflatningsmyndir
efla formskyn sitt
búa til einfaldar teikningar með hjálp teikniáhalda
teikna fríhendis einfaldar hjálparmyndir í vinnu og námi
leggja stund á fagbundið teikninám eða annað fagnám