Í áfanganum verður fjallað um eftirfarandi efnisþætti: Þróun lífsins og þróunarkenninguna, flokkunarfræði og tvínafnakerfið, ríki lífvera, einkenni dýraríkisins, áhrif mannsins á dýralíf jarðar, helstu fylkingar hryggleysingja (svampdýr, holdýr, flatorma, þráðorma, liðorma, lindýr, liðdýr og skrápdýr), seildýr, hryggdýr, fiska, froskdýr, skriðdýr, fugla og spendýr. Áhersla er lögð á íslenska fánu en nemendur fá einnig kynningu á öðrum dýrum jarðar (einkum hryggdýrum).
LÍFF2GR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þróunarsögu og fjölbreytileika lífríkisins, einkum dýraríkisins
helstu fylkingum hryggleysingja og helstu flokkum hryggdýra; flokkun, þróun, einkenni, búsvæði, fæða, æxlun, lífsferill o.þ.h.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nýta greiningarhandbækur til að greina ýmis dýr til tegunda
greina lífverur í flokkunarfræðilega hópa samkvæmt myndum og sýnum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
átta sig á fjölbreyttum dýrum í umhverfi sínu og geta greint þau í flokkunarfræðilega hópa
bera saman mismunandi hópa dýra og meta hvað er líkt og ólíkt með þeim
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá