Stærðfræðileg viðfangsefni í daglega lífinu leyst með skipulögðum vinnubrögðum og notkun allra mögulegra hjálpartækja, svo sem síma, tölva og reiknivéla. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: Reikniaðgerðir (samlagning, frádráttur, margföldun og deiling) og röð aðgerða, prósentur, vextir, myndrit, hnitakerfi og rúmfræði (flatarmál fog rúmmál).
Unnið er með útreikninga og stærðfræðileg hugtök sem nýtast nemendum í daglegu lífi. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Undirstöðuatriðum í reikningsaðgerðum og forgangsröðun aðgerða
Mikilvægi stærðfræðinnar í daglegu lífi
Grunnatriðum í prósentureikningi
Myndritum og hnitakerfi
Flatarmáli og rúmmáli
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nota vasareikni, tölvu og aðrar reiknivélar
Nota algeng stærðfræðitákn
Vinna með tölur á fjölbreyttan hátt
Beita prósentureikningi í einföldum dæmum
Búa til og lesa úr myndritum og hnitakerfi
Reikna flatarmál og rúmmál
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum
Setja fram tölulegar upplýsingar og skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
Beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu
Temja sér gagnrýna en um leið skapandi hugsun
Tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð
Námsmatið er einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.