Aðalmarkið áfangans er að auka skilning nemandans á undirstöðum reikniaðgerða og hvernig hægt er að nýta þá færni í daglegu lífi. Í áfanganum er lögð megináhersla á nemandi tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð og þjálfist í samvinnu og rökhugsun.
STÆR1GR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
bókstafareikningi
jöfnum
almennum brotum/hlutfallareikningi
einföldum fjármálareikningi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leysa bókstafareikning í einfaldri mynd
leysa einfaldar jöfnur úr daglegu lífi
beita einföldum fjármálareikningi sem snýr að daglegu lífi og neyslu
vinna í hópi og gera grein fyrir niðurstöðum
beita hlutfallareikningi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta sér reikniaðferðir til að skilja og leysa verkefni daglegs lífs
geta beitt stærðfræði við verkefni sem varða samskipti hans við samfélagið
hugsa rökrétt, frá einu skrefi til annars
sannreyna niðurstöður
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.