Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434110588.62

    Raflagnir grunndeildar rafiðna B
    RAFL1GB03
    3
    Raflagnir og efnisfræði rafiðna
    Raflagnir
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Fjallað er um framleiðslu rafmagns og mismunandi gerðir flutningskerfa. Farið er í öryggismál, hvernig á að haga sér við hinar ýmsu aðsæður. Nemendur læra að nýta sér reglur og staðla við lagnir. Farið verður í mismunandi gerðir rofa, lagnir íbúðarhúsa og greinatöflur tengdar. Helstu heimilistæki eru kynnt og orkunotkun þeirra skoðuð. Nemendur læra að velja leiðara miðað við orkunotkun og velja varbúnað við hæfi.
    RAFL 1 GA 03 Raflagnir grunndeildar rafiðna A
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Slysahættum sem eru á vinnu við rafmagn á vinnustöðum.
    • Framleiðslu raforku og helstu flutningsleiðum til notenda.
    • Utanaðkomandi aðstæðum á raflagnir eins og raka og varma.
    • Öryggis og reglugeðarákvæðum er varða raflagnir og varnaraðferðir.
    • Hellstu heimilistækjum og straumþörf þeirra.
    • • Mikilvægi fagmannlegra vinnubragða
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Tengja ýmsa rofa og búnað sem tilheyra minni veitum.
    • Forðast hættur bæði í vinnu við rafmagn og umgengni á vinnustöðum.
    • Draga leiðara í rör.
    • Skipleggja starf sitt og beita faglegum vinnubrögðum.
    • Tengja helstu rofa og tengla í minni veitum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Gera sér grein fyrir hættum sem leynast við vinnu með rafmagn og verkfæri.
    • Gera sér grein fyrir orkunotkun í heimahúsum og velja búnað í samræmi við hana.
    • Velja raflagna efni í minni veitur.
    • Leggja raflagnir og tengja í minni veitur.
    Verkefnavinna og próf. Lámarkseinkunn í áfanganum er 5.