Markmiðið er að nemendur dýpki þekkingu sína á möguleikum tengdum fjölbreyttri verkstæðisvinnu, s.s. í mótagerð, gips- og steypuvinnu, smíði og límingum. Unnið er á verkstæði undir handleiðslu kennara. Námið er byggt á einföldum verkefnum í hverjum miðli en nemendur vinna frjálst lokaverkefni í lok áfangans og nýta til þess ýmist einn miðil eða blandaða tækni. Farið er í vettvangsferðir til að kynnast fleiri efnum og aðferðum. Ýmsir sérfræðingar eru kvaddir til, myndlistamenn, hönnuðir og fræðimenn sem geta gefið nánari sýn inn í margbrotin heim efnis og aðferða.
VSTÆ2EA05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
eiginleikum ólíkra miðla fyrir listsköpun og hönnun
ólíkum eiginleikum fjölbreyttra efna sem gjarnan eru notuð af myndlistarmönnum og hönnuðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
velja sér miðil sem hentar persónulegum vinnubrögðum og hugmyndum
nýta sér upplýsingar um eiginleika ólíkra miðla og gera tilraunir með efni og aðferðir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna með ólíka eiginleika mismunandi efna og beita fjölbreyttum aðferðum til þess að gera persónuleg og frumleg verk